Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Til Lindu

06. maí 2008 klukkan 23:24
Hahahaha... já hún Linda systir er eitthvað að biðja um blogg hérna.

Já hvað er búið að gerast síðasta mánuðinn...
Idol keppnin, búin að skirfa um hana.
Vorhátíðin... Mjög gaman, allir rosalega fullir, sérstaklega yfirmennirnir það var mjög hlægilegt að horfa á fólkið. Byrjuðum heima hjá Sonju, bolla í boðinu, svo var haldið til Kiwanis hússins þar sem hátíðin var haldin, ég vann snyrtivörur í happadrættinu... einmitt það sem mig vantar fleiri snyrtivörur í efnaverksmiðjuna mína. Ótrúlegt en satt þá var ég ekki drukkin, en gat þó skemmt mér og dansað, og líka sjá hvað fólk getur verið vitlaust á fylleríum, líka gott að hafa ekkert gert af sér. Ég losnaði þó ekki við þynkuna daginn eftir þó ég hafi ekkert verið drukkin kvöldið áður. En það kallaði bara að einn sóðaborgara og bíó með Sylvíu á forgetting Shara Marshall... mæli með henni.
Sígaretti kynning á Broadway... Bauð Karen með mér á hana, langt síðan að ég hef séð homeboyin minn. Það var drullugaman, vondar sígarettur og allt of mikið af fólki, en hver stenst frítt áfengi. Rakst á gamlan skólafélaga, reyndar 4, gamla yfirmanninn og svo auðvitað fólk úr vinnuni. Ég, Karen, Bryndís og Sylvía ákváðum að spara okkur smá pening og labba niður í bæ frá Broadway, það var fínn göngutúr, kíktum á kofan, 11, og celtic, rakst á hina Karen og Höllu sem ég var með í skóla úti í Danmörku, hún minnti mig á að það eru 5 ár á næsta ári sem við vorum í skólanum og þá er reunion sem maður mætir auðvitað á. Held við höfum slammað allt of mikið þetta kvöld því daginn eftir gat ég varla hreyft á mér hausinn fyrir hálsríg.
Sumarbústaðferð... Fór með Gróu Sonju og Sylvíu í smá afslöppun í Grímsnesinu. Mættum á föstudeginum og Gróa grillaði fyrir okkur pylsur svo lögðumst við í pottin með glas í annarri, og góða tónlist. Ég ætla bara að segja frá þessarri bústað ferð í stuttum dráttum sumt sem má bara vera eftir á Grímsnesinu hmm.Anywho, á laugardeginum lágum við mestan daginn í leti.Sylvía hrundi ofan í pottin eftir að hafa rekið tánna illilega í, en hún meiddist ekkert sem betur fer svo það má hlæja að þessu, verst að hafa ekki verið með video cameruna. Svo smá note to self, muna að taka af sér sokkana áður en maður fer í pottin, var næstum búin að gleyma því, en það var líka eftir simpson drykkjuleikin, sem er stórhættulegur. En annars var maturinn indislegur, takk fyrir mig, og stelpurnar indi. Brosandi

Það sem er framundan
Snyrtiskvísudjamm....á föstudaginn stelpurnar úr heildsölunum og búðunum fara allar saman á Tapas og smá djamm eftir... Versta er að þetta er hvítasunnuhelgin, svo það eru ekki margir sem verða í bænum, en við hinar sem förum við eigum eftir að skemmta okkur konunglega, Jackie verður þarna og vonandi Gróa líka.
Nýja herralína frá Hansen.....sem var að koma í búðir, er mjög herraleg, not gay strákar mæli með henni. Það verður stórt kynningar partý fyrir okkur.
Eurovision og Ingunn í heimsókn....hef ekki ákveðið hvað ég geri en ætla pott þétt að kíkja á djammið með Ingunni. Hún er að fara að opna snyrtistofu á Eskifiri, snyrtistofan Eir, svo allir að fara á Eskifjörð á snyrtistofuna hennar.Brosandi Hún er snillingur.
Birna á afmæi... já hún Birna á afmæli núna í júní, og hún skal sko fá að komast út að skemmta sér elskan. Hvað langar þig í afmælisgjöf?

Svo er pælingin á afmælinu mínu sem er 26 júni að fara í smá útilegu... hvert, veit eg ekki enþá, og ætla að kíkja á humarhátíð, fyrstu helgina í júlí.

Jæja ætli það sé ekki komið gott í bili... Buenas noches....Svalur

Prófíll

  • Nafn: Svava
  • Staður: kóp
  • Atvinna: Stílisti, snyrtifræðinemi og vinn í snyrtivörudeild
  • Hjúskaparstaða: Á lausu
  • Annað: Endilega kvittið í gestabókina elskurnar!!!!

Klukkan

Leit

Leikur dagsins

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Worst Day Ever Funny Images, Very jealous girlfriend Funny Images, DVD rental Funny Images, Tastes like fame Funny Images, Going to the School Dance Funny Images, Being positive