próf próf próf og aftur próf
Djöfull er maður komin með ógeð af þessari umræðu í þjófélaginu í dag langar helst að æla.
Já þetta er kanski ekkert voða skemmtilegt blogg hjá mér en maður er svona hálf tómur.
model
Mig sárvantar model, svo að ég ætla að setja hérna niður model lista fyrir næstu viku ef að þið hafið áhuga á. Þið getið þá haft samband við mig í síma 844-6299 ef þið viljið koma sem mér þætti rosa vænt um :)
heilnudd er þriðjudaginn 20 okt kl 8:10
andlitsmeðferð miðvikudaginn 21 okt tími kemur upp seinna
kvöldförðun miðvikudaginn 21 okt kl 13:00
handsnyrting fimmtudaginn 22 okt kl 8:10
lit og plokk fimmtudaginn 22 okt tími kemur seinna
Endilega hafið samband ef að þið hafið áhuga á að kíka :)... Nánar
Blogg fyrir svefninn
Mér finnst að þegar fólk er með party í blokk er alveg lágmark að hafa góða tónlist, það lá við að DJ Sveifílicious færi hér í eina íbúðina og leyfði þeim að heyra hvernig alminnileg tónlist hljómar... en svona er þetta það er ekki hægt að bjarga öllum.
Talandi um tónlist hver man ekki eftir 90´s hittaranum What is love með Haddaway sem sat nú bara einar 52 vikur á toppnum á flestum vindælda listum... Kanski hefur það farið frmahjá ykkur en kallin ætlar að skella sér til Íslands og halda smá partý á Nasa og auðvitað ætlar kjellingin að mæta á staðin, spurning hvort maður fari aftur í tíman í svaka diskoklæðnað með gerviaugnhárin upp að enni haha... kemur í ljós. En ég ætla að skella mér með Rachel and Iris. Hressleiki.
En ég held að ég fari að sofa það verður ansi langur dagur á morgun bara bóklegt 8 tímar svo bóklegt um kvöldið vonandi ekki meira en 2 tíma annars verð ég crazy...
Smoke and a pancake....
Rakel sæta:)

Já stelpurnar mínar í 10 eru indislegar gæti ekki verið heppnari með hóp.
Hvað er að frétta??.... Allt og ekkert, bara alltaf nóg að gera, það fer að styttast í próf hjá mér, svo er maður í kvöldskólanum hjá f.b búin að læra að brugga svo að maður fer að selja solleiðis til að afla sér inn smá peninga, því ekki er nú gert mikið fyrir okkur námsmenn og upphæðin sem maður fær á mánuði í framfærslueyri er alveg til skammar, enda er ég en að vinna líka. Svo þá vitiðið það, það fá allir landabrugg frá Sveifunni í jólagjöf er það ekki í lagi ? He he.
Annars held ég að það fari að koma tími á mig að fara að djamma hef ekki farið svooooo lengi síðast þegar ég fór var ég edrú, það var reyndar allt í lagi, fólk er frekar fyndið þegar það er drukkið, hef ekki alveg séð það þegar ég hef verið í glasi sjálf, svo ég er búin að vera að pæla... hvernig er ég í glasi, þessi leiðinlega týpa eða fyndna týpan ea kanski bara virkilega fulla týpan??? Einhver comment he he.
Ég er að deyja langar svo í helgarferð til London fara í nokkrar ákveðnar búðir og versla, hver vill bjóða mér?
Jæja ætla að halda áfram að dagdreyma...
Dreymi ykkur vel

úúúúúúfffffffffffff
Já kanski soldið langt síðan að maður hefur bloggað. Enda er ég ekkert búin að vera mikið heima í júlí.
Ég skellti mér á humarhátíð fyrstu helgina í júlí. Það var stuð hefði samt mátt vera betra veður. Fórum í smá drykkjuleiki... ja ef það má kalla það smá. Kíktum svo down town Höfn þar sem ég týndi stelpunum og Kolla var orðin batteríslaus. En strákarnir björguðu mér, drógu mig út um allt, en skemmti konunglega. Smá þynka á laugardeginum en það lagaðist með afréttara um kvöldið ásamt fleiri drykkjuleikjum þar sem við drógum einn þjóðverja með okkur hún fékk alveg að finna fyrir því ha ha. Kíktum þaðan í eitthvað para party ég og Þórunn þekktum engan og vorum líka single svo við vorum engan vegin að passa þarna inn. Enduðum svo í þriðja partýinu þar sem voru margar þjóðir komnar saman. Seinna um kvöldið var maður búin að tala svo mikið ensku að við vorum farnar að tala sjálfar saman á ensku ha ha.... lúðar. Hitti seinna Ingunni, og ætlaði með henni á ball en kortið okkar Kollu virkuðu ekki inni og kerlingin vildi ekki prufa aftur svo ég ákvað að fara bara með Þórunni heim. Allt í einu fyllist allt húsið af fólki ég var alveg búin á því og Þórunn líka svo við fórum bara inn í rúm... fólkið var reyndar ekki lengi en eftir smá tíma komu strákarnir og þá var friðurinn úti verst að við vorum ekki með lás á hurðinni, þeir voru alltaf að koma inn lögðust upp í rúmmið þetta var fyndið í smá tíma en svo var maður alveg að fá sig full sadda af þeim. held að það hafi tekið okkur 2 tíma að losna við þá út úr herberginu. En svo loksins fengum við svefn. Daginn eftir tókum við okkur bara tíma að vakna og taka okkur til fyrir heimleið. Bíllinn minn var ekki alveg að gera sitt þegar aðeins 1/3 var búin af ferðinni heim, hann var farin að hökkta aðeins, en við komumst samt heim og bíllinn er í fínu lagi, hann greinilega þolir bara ekki langferðalag. Stoppuðum smá á Klaustri hjá foreldrum Þórunnar. Mjög flottur staður verð ég að segja, cozý
Síðan var það vikufrí upp í Grímsnes með Ásu, Oddný, Huldu og Siggu. Sigga kom reyndar ekki fyrr en á sunnudeginum og fór á fimmtudegi. Eini góði sólardagurinn sem við fengum var á laugardeginum þá var alveg steik, og svo auðvitað á föstudeginum þegar við vorum á leiðinni heim, það er alltaf svoleiðis. Þó að veðrið hafi ekki verið sem best þá fór ég samt út að skokka og svona því að ég var að vera geðveik á að hanga inni og gera ekki neitt. Einn daginn tók ég mig til og og fór út að hlaupa og lagðist í pottin eftir það með hvítvín sígó og bók. Það var virkilega nice, stelpurnar hlógu samt soldið af mér. Svo komumst við í feitt einn daginn, við fundum kassa með lifandi vísindum ha ha ha já urðum smá hooked á þeim. Annars var þetta mjög fín ferð náðum að slappa af fengum okkur í glas og svona. Hefði samt viljað ferðast meira þarna í kring.
Þar á milli er ég bara búin að vera að vinna, ekkert mikið djamm á manni. En það er líka bara gott að ferðast líka meðan maður getur... er þaggi? Um verslunarmannahelgina var smá svo ættarmót, reyndar bara afkomendur afa og ömmu, en það var nóg erum komin upp í 27 manns. Það var bara mjög gaman betra en ég hélt, fékk ekki að heyra ertu komin með kall, og það var ekki sett út á það sem ég borðaði og engin skipti sér af því hvort ég reykti eða ekki.... fyrsta skiptið. Samt voru oft hlutir sem að fólki fannst greinilega að hefði mátt gerast í gær, sumir gleyma að maður er þarna í slökun en ekki stressi, en svona er family. En komst að því að ég er bara allt öðruvísi en alir aðrir í fjölskyldunni minni... En það er allt í lagi, verður ekki einn að vera aðeins öðruvísi? Kíktum aðeins í veiði, og í fjöruna sem var reyndar bara í 15 mín út af flóði, hefðum kanski átt að fara fyrr af stað. Annars var ég bara ánægð með helgina, spurning hvort við gerum þetta aftur, vonandi verð ég þá ekki eina sem verð single þá ha ha ha. Ekki það að ég hafi eitthvað á móti því.
Í dag var fyrsti skóladagurinn og ég er búin að vera í algjöru spennufalli í dag, svaf líka ekkert í nótt, svo ég steinrotaðist þegar ég kom heim. En fyrsi dagurinn var bara spennandi held að hópurinn sé ágætur, kemur í ljós á næstu dögum, vona það allavega af því ég þarf að vera með þessum stelpum alla daga næstu 11 mánuðina. En þetta er spennó er búin að fá búningin erum að bíða eftir bókunum og fáum vonandi förðunartöskuna í næstu viku, það er s.s að koma nýtt merki inn og við fá það glo minerals, veit ekki hversu mikið við fáum að nyx vörunum held að við fáum eitthvað af því. Við megum líka versla í heildsölunni og setja í reikning.... úfff mjög hættulegt... En ég er mjög bjartsýn, vona að dagurinn á morgun verði jafn góður.
Annars ætla ég að fara aftur að læra, próf í næstu viku... shit..
Adios Svava

afmælisblogg
Var svo með smá teiti eða mat á föstudeginum það komu nokkrar stelpur, ætlaði að kíkja eitthvað út en var farin að líða eitthvað voða illla svo ég ákvað að vera heima, enda stuttu seinna eftir að stelpurnar voru farnar fékk ég hálftíma blóðnasi, hélt bara að það ætlaði ekki að hætta að blæða. Svo fékk svona skrítinn hausverk og var farin að detta út. En ég ákvað að fara ekki á bráðamóttökuna því ég er að reyna að hafa þetta einu sinni bráðamótökulaust ár. Ég er allavega en á lífi svo ég hlýt að vera í lagi.
Annars styttist í humarhátíð... hverjir ætla að koma?
Ég hef náð fyrsta áfanga í ræktinni er farin að geta rennt upp buxum sem ég hef ekki getað gert, magin er líka aðeins buin að minka svo þetta er allt að koma. Ætla mér að komast í small rauða pilsið mitt. Er svona að vona að brjóstin munu minnka aðeins því þau hafa stækkað um 2 skálastærðir sem er ekki nógu gott...
En kanski best að fara ap sofa mæti í ræktina hálf 7 í fyrramálið
Góða nótt:)
Núverandi
Núverandi klukkan: 18:58
Núverandi Staðsetning: í rúmminu inni í herbergi
Núverandi dagur: 17 júní árið 2008
Núverandi Skap: eirðarlaus
Núverandi hár: curly slegið
Núverandi klæðnaður: hvítar stuttar buxur og svartur hlýrabolur... I know... my classic look svart og hvítt
Núverandi undirföt: svart og hvítt bh og th
Núverandi förðun: litað dagkrem frá shiseido, eyliner frá shiedo og maskari frá dior, bara létt förðun í dag
Núverandi Uppáhalds leikari: Viggo Mortensen
Núverandi Uppáhalds leikkona: Uma Thurman
Núverandi Uppáhalds matur: grillmatur... enda komið sumar
Núverandi heimasíða: þessi og svo er kjellingin með myspace og facebook...:) nerd
Núverandi bók: Ísfólkið er á bók númer 17 ekki komin langt enda er marr að læra líka:)
Núverandi tónlist:;Kate Bush... thank you Karen :)
Núverandi Skartgripir: hringurinn minn
Núverandi blótsyrði: are you shittin´me
Núverandi söfnun: lúxusprufur af ilmvötnum og peningar off course
Núverandi ást: ís
Núverandi kækur: hef alltaf verið með 2 kæki einn er að teygja á í súmminu sko þegar ég er að fara að sofa og svo lækka ég í útvarpinu þegar ég sé lögguna... er samt farin að minnka .etta
Núverandi skemmtun: Linda hahaha
Núverandi uppáhalds þáttur: hmmm verð að viðurkenna að það eru fáir þættir í sjónvarpinu núna sem heilla mig eitthvað smávegis svo ég verð að segja pass
Núverandi bíomynd: Eastern promises
smá júní blogg:)
Fékk að vita það um daginn að skólinn byrjar 6 ágúst... bjóst ekki við að hann myndi byrja svona snemma, en fínt að ljúka þessu af. Mér bæði kvíður og hlakka til. Er líka smá vandamál þar sem Jackie og Gróa eru í fríi á þessum tíma, vissi ekki að þær færu á sama tíma, en ekki get ég skrópað, svo eru helgarstelpurnar að byðja um meiri vinnu svo þær hljóta að geta tekið þessar vaktir fyrir skólan. Svo er líka annað vandamál er að ég er í fjarnámi í sumar og prófin eru 11-14 ágúst, ég hlýt að geta fengið frí í skólanum í klukkutíma því ekki er ég lengi að taka próf. Eina vandamálið við f.á er að maður verður að sitja inni í klukkuíma sem mér finnst asnalegt því ég er ekki svo lengi þarf oftast að sitja og gera ekki neitt í 20 mín. Ég reyni að fá undanþágu.
Það var keyrt á mömmu um daginn og það var einhver útlendingur sem talaði hvorki ensku né íslensku,.... óþolandi... svo að hún hringir á lögguna til að fá hjálp svo allt væri gert rétt og hún fengi örugglega úr tryggingunum. En löggan skilaði ekki inn skírslunni, sem mér finnst fáránlegt, þeir hafa greinilega ekki nennt þessu, svo hún er búin að vera í veseni með að fá út úr tryggingunum en heppnaðist á endanum. En mér er sama löggan á að gera sína vinnu, maður á að geta treyst á þær. Þetta var allavega illa gert.
Eru þið að grínast með bensínverðið, þetta er ekki einu sinni fyndið, hvernig á fólk að lifa í dag, það er allt að hækka, meira að segja bónus er ekki svo ódýrt lengur.
Hmmm...
Hvað hef ég verið að gera af mér þessa dagana.
Það var snyrtiskvísudjammið. Það var geggjað stuð. Vorum ekki jafn margar og vorum búnar að skrá okkur, enda hvítasunnuhelgi, en það var góðment en góðment eins og Helena sagði alltaf hahaha. En við byrjuðum á Tapas fengum okkur smá í glas og nokkra rétti, svo fengum við okkur það sem við viljum kalla fullnægingu í eftirrétt, sem er s.s einhverskonar súkkulaði mús með rjóma. Fórum svo á sólon stoppuðum stutt, og fórum á apótekið, fékk mér sex on the beach þar, og hann var geggjað góður langt síðan að maður fékk góðan kokteil hérna heima. svo einhvernvegin týndum við hvorri annarri, ég endaði á djamminu með Völu, mega stuð hjá okkur, kíktum á Rex og Hressó. En ég þakka fyrir gott djamm stelpur þurfum að gera þetta oftar.

Svo var það Hans F. Hansen partýið, hittum sjálfan fótboltakappan. Ég lenti á mynd á netinu, fun.
Svo var Ingunn í heimsókn, við fórum að versla inn hluti fyrir snyrtistofuna hennar, leitt að geta ekki hitt hana meira þessa helgi. En ég kem pott þétt á humarhátíð og hitti kellu svo þarf ég að kíkja á stofuna hennar þegar hún verður tilbúin.
Eurovision party.... ég er löngu búin að gefast upp á þessu eurovision dæmi, allt of miklir peningar sem fara í eitthvað sem við höfum engan séns á að vinna. Eins og ég segi þá er þetta góð afsökun til að fara að djamma... eins og maður þurfi hana. Ætlaði niður í bæ en var orðin eitthvað veik í maganum, enda komst ég seinna af því að ég var komin með magabólgur. Já heppnin eltir mig..ha ha ha.
Svo fór ég í brúðkaupsparty til Elvu Daggar og Jón Þórs, til hamingju með giftinguna. Skemmti mér svo vel og ég og Ása vorum svo fullar, en fórum samt snemma heim sem var fínt, maður er farin að læra hvenær á að hætta.
Svo var það afmælið hennar Birnu (til hamingju með afmælið) og innflutningspartyið, og það var sko ekkert verið að spara áfengið þar. Það var rosa stuð og ég skemmti mér konunglega þó að ég var held ég eina sem var á lausu og á engin börn. Var líka yngst sem er æðislegt. Byrjuðum á players, svo var það einhver sem fór að pissa og fann nálarfar og blóð í klósettpappírnum. Þetta er ógeðslegt, hvernig getur fólk gert þetta, enda næst tek ég með mér klósettpappír eða pissa bara úti held að það sé öruggara. Jukk fólk getur verið með HIV og allskonar sjúkdóma, það er svo þegar fólk er veikt og hugsar bara um sjálfan sig. Kíktum svo niður í bæ þar til var komið gott og fór heim með Hlölla. Þá var litla frænka ný vöknuð eftir að hafa sofið frá hálf 11 um kvöldið og var skælbrosandi, gott að kúra hjá ömmu.
En ég ætla að reyna að sofna aftur og ná þessari pest úr mér svo ég geti mætt í vinnu á morgun.
Adios í bili.
Til Lindu
Já hvað er búið að gerast síðasta mánuðinn...
Idol keppnin, búin að skirfa um hana.
Vorhátíðin... Mjög gaman, allir rosalega fullir, sérstaklega yfirmennirnir það var mjög hlægilegt að horfa á fólkið. Byrjuðum heima hjá Sonju, bolla í boðinu, svo var haldið til Kiwanis hússins þar sem hátíðin var haldin, ég vann snyrtivörur í happadrættinu... einmitt það sem mig vantar fleiri snyrtivörur í efnaverksmiðjuna mína. Ótrúlegt en satt þá var ég ekki drukkin, en gat þó skemmt mér og dansað, og líka sjá hvað fólk getur verið vitlaust á fylleríum, líka gott að hafa ekkert gert af sér. Ég losnaði þó ekki við þynkuna daginn eftir þó ég hafi ekkert verið drukkin kvöldið áður. En það kallaði bara að einn sóðaborgara og bíó með Sylvíu á forgetting Shara Marshall... mæli með henni.
Sígaretti kynning á Broadway... Bauð Karen með mér á hana, langt síðan að ég hef séð homeboyin minn. Það var drullugaman, vondar sígarettur og allt of mikið af fólki, en hver stenst frítt áfengi. Rakst á gamlan skólafélaga, reyndar 4, gamla yfirmanninn og svo auðvitað fólk úr vinnuni. Ég, Karen, Bryndís og Sylvía ákváðum að spara okkur smá pening og labba niður í bæ frá Broadway, það var fínn göngutúr, kíktum á kofan, 11, og celtic, rakst á hina Karen og Höllu sem ég var með í skóla úti í Danmörku, hún minnti mig á að það eru 5 ár á næsta ári sem við vorum í skólanum og þá er reunion sem maður mætir auðvitað á. Held við höfum slammað allt of mikið þetta kvöld því daginn eftir gat ég varla hreyft á mér hausinn fyrir hálsríg.
Sumarbústaðferð... Fór með Gróu Sonju og Sylvíu í smá afslöppun í Grímsnesinu. Mættum á föstudeginum og Gróa grillaði fyrir okkur pylsur svo lögðumst við í pottin með glas í annarri, og góða tónlist. Ég ætla bara að segja frá þessarri bústað ferð í stuttum dráttum sumt sem má bara vera eftir á Grímsnesinu hmm.Anywho, á laugardeginum lágum við mestan daginn í leti.Sylvía hrundi ofan í pottin eftir að hafa rekið tánna illilega í, en hún meiddist ekkert sem betur fer svo það má hlæja að þessu, verst að hafa ekki verið með video cameruna. Svo smá note to self, muna að taka af sér sokkana áður en maður fer í pottin, var næstum búin að gleyma því, en það var líka eftir simpson drykkjuleikin, sem er stórhættulegur. En annars var maturinn indislegur, takk fyrir mig, og stelpurnar indi.

Það sem er framundan
Snyrtiskvísudjamm....á föstudaginn stelpurnar úr heildsölunum og búðunum fara allar saman á Tapas og smá djamm eftir... Versta er að þetta er hvítasunnuhelgin, svo það eru ekki margir sem verða í bænum, en við hinar sem förum við eigum eftir að skemmta okkur konunglega, Jackie verður þarna og vonandi Gróa líka.
Nýja herralína frá Hansen.....sem var að koma í búðir, er mjög herraleg, not gay strákar mæli með henni. Það verður stórt kynningar partý fyrir okkur.
Eurovision og Ingunn í heimsókn....hef ekki ákveðið hvað ég geri en ætla pott þétt að kíkja á djammið með Ingunni. Hún er að fara að opna snyrtistofu á Eskifiri, snyrtistofan Eir, svo allir að fara á Eskifjörð á snyrtistofuna hennar.
Hún er snillingur.Birna á afmæi... já hún Birna á afmæli núna í júní, og hún skal sko fá að komast út að skemmta sér elskan. Hvað langar þig í afmælisgjöf?
Svo er pælingin á afmælinu mínu sem er 26 júni að fara í smá útilegu... hvert, veit eg ekki enþá, og ætla að kíkja á humarhátíð, fyrstu helgina í júlí.
Jæja ætli það sé ekki komið gott í bili... Buenas noches....
AAAATTSSJJJÚÚÚÚÚÚÚÚ

Það er nóg að gera í námskeiðunum þessa dagana enda að koma inn mikið af nýjum vörum, sem er gott.
Það styttist í vorhátíðina og það er ekkert að ganga hjá mér að finna kjól, hef alveg tekið eftir því að stelpur hér á landi eiga greinilega ekki að vera með brjóst eða mjaðmir. En klæðnaðuinn skiptir kanski ekki öllu.
Idol keppni Hagkaupa var um daginn, og auðvitað unnu við bestu grúppíurnar
, enduðum í þriðja sæti í söngkeppninni, enda var Bryndís svaka flott þarna uppi. Ætlunin var nú að fara þangað að fá sér 1-2 glös, en endaði svo með þessu heljarinnar fyllerí. Ég endaði uppi á sviði og var komin með eiginhandaráritanir á báðar hendur hmmmmm. Var að skoða myndirnar af keppninni á heimasíðunni og það gleður mig mjög mikið að ég hafi náð að forðast undan stóru myndavélinni svo það er ekki mikið af myndum af mér... takmarki náð. Það verður spurning um næstu helgi hvort að það heppninst. Það verður byrjað soldið snemma..... eða við stlelpurnar byrjum soldið snemma, erum í fríi
. Annars veit ég ekkert hvað ég er að bulla.







